Af gerð krókódíla
Angan hennar hékk enn í loftinu og ég raunar líka og ég lamdi höfðinu við af einskærri gleði. Þá tók náttúran við. Ó við hugsaði ég og nær kulnað bálið gladdist og gerði atlögu að umhverfi sínu. Sársaukastunur fjallana bergmáluðu veröldina rauða um stund. Sjálfur hnoðaði ég krókódíla úr skýjunum, en þegar þeir tóku að éta björgunarsveitarmenn ástarinnar var mér nóg boðið og hugsaði mér til heimferðar. Angan hennar hangir enn í loftinu, og ég raunar líka.